Ég er algjörlega að hundsa þessa síðu okkar systra um
þessar mundir sem mér finnst alls ekki nógu gott og því ákvað
ég að rita niður nokkur orð.
Það er kominn desember sem þýðir að einn af mínum uppáhalds
mánuðum er genginn í garð. Ég er algjört jólabarn, enda er ég alin
upp á algjöru jólaheimili og jólin eru ótrúlega góður og friðsæll
tími í mínum augum. Á meðan öll þjóðin er að farast úr stressi
og allir á handahlaupum í innkaupum og látum er
ég bara í mínu rólega jólaskapi.
Ég er búin að vera ágætlega dugleg í dag við að læra fyrir eina
prófið sem ég fer í þessa önnina. Ég þarf samt að fara betur yfir
þetta og leggja þetta vel á minnið svo ég nái nú prófinu og geti
farið sátt í mitt mánaðarjólafrí ef kalla ætti frí þar sem ég, eins
og flest allir menntaskólanemar, byrja að vinna um leið og ég er
búin í prófinu á mánudaginn næsta.
Já svona fyrst ég var að ræða jólin hérna fyrr í færslunni fór
ég að huga að því sem ég hef ætlað mér að gera í desember og eitt
af því er að skrifa jólakort. Mér finnst það óskaplega skemmtilegt
og ennþá skemmtilegra að fá jólakort
... það er svona sérstök
stund að setjast niður og hjálpa mömmu að skrifa utan á umslögin
sem hún er að senda og svo skrifa mín jólakort. Mamma og pabbi hafa
frá því ég fæddist sent jólakort með myndum og ég vil ólm halda í
þá hefð þó ég sé að verða tvítug. Ég er greinilega bara svona
íhaldssöm
... það er líka svona sérstök jólastund hjá okkur
systrum að pósa fyrir mömmu og hún tekur fullt af myndum af okkur
og svo veljum við í sameiningu þá mynd sem við viljum allar hafa
.. ooo jólin eru dýrlegur tími.. 
Ég gæti skrifað endalaust um jólin.
Aðfangadagur er líka mjög sérstakur.. þessi dagur er svo
friðsæll finnst mér. Maður vaknar í rólegheitum, kveikir á
sjónvarpinu og yljar sér við gamlar minningar þegar maður sat og
horfði á jólabarnatímann og skemmti sér konunglega. Svo fer maður í
bað og gerir sig sætan og fínan og húsið hérna fyllist yfirleitt af
gestum og gangandi langt fram eftir degi. Gúí kíkir oft hingað,
Kolla frænka, Dagný og Arnar og nú Franklín Máni með þeim, já og
fullt af fólki þannig að mamma er alltaf með heitt súkkulaði og
smákökur. Svo þegar klukkan nálgast hálf sex erum við öll tilbúin
og leiðin liggur út í Grafarvogskirkju, ójá það er svo hátíðleg.
Klukkan rúmlega sjö erum við svo komin heim aftur og við fáum
okkur að snæða þennan líka dýrindsmat sem hún yndislega móðir mín
eldaði svo lystilega
... eftir það hjálpumst við öll við að taka
til og setjumst inn í stofu og opnum pakkana... oft á tíðum kíkir
fólk til okkar í heimsókn, í "desert" eða eftirrétt á góðri
íslensku.
Já þessi jólatími er yndislegur eins og ég hef sagt oft í
þessari færslu... ég hef alltaf verið og mun örugglega alltaf vera
Ella jólastelpa 
Jæja.. ekki meira í bili..
-SYSTUR-